Olinabeib

Beibíkeiks ......

Tuesday

Bestu steikur í heimi !!!!


Í gær fórum við á steik hús reyndar dýrasta máltíð sem að við báðar höfum borðað :P En steikin var sko algjörlega þess virði það hefur ekki en verið framleit lysingar orð til að lýsa þessari steik og meðlætið OMG!!! steikin var svo góð að það þurfti engan vegin sósu, það þurfti ekki einu sinni hníf og hvað þá að tyggja ... ég fæ vatn í munninn bara við tilhugsunina .. Svo ef þú ert á leið til NY þá verður að fara á Del Friscos ... ég borðaði örugglega 10 steikur í sumar í Tyrklandi þar af voru 4 framúr skarandi góðar en ... þessi var svona 10 stigum ofar á listanum hún var topp 10 listinn yfir bestu steikur í heimi. Og auðvita fékk Hrönnsla sé súkkulaði köku en hún var í öðrusæti yfir súkkulaði kökur í heiminum, Chillis súkkulaði kakan er en númer 1! ;)

Eins æðisleg og NY er þá er þetta búið að vera mjög erfið ferð:P við erum búnar að fara í 10 H&M búðir 4 Victorias Secret og allavega 5 Forever 21 ... fyrir utan að labba fleiri þúsund kílometra, Hrönnsla er kominn með blöðrur á táslurnar og verki upp að hnjám. Ég er nú að sleppa pínu betur er bara með verki rétt upp á miðjakálfa og engar blöðrur ... en þetta er klárlega búið að vera þess virði :D : D :D fórum áðan í Empire State og horfðum niður, ég aðeins meira en Hrönnsla ;) hahaha geggjað að sjá þarna niður svona yfir allt að kvöldi, en mikið djöfull var ógeðslega skíta kallt :P áður en við fórum uppí ES þá fórum við á Bodies sýninguna alveg mögnuð sýning en CREEPY :P
Kveðja frá NY ...

Saturday

The town 4 shopaholics

Og það er sko ekki grín :P kíktu smá að vesla í dag ætluðum að taka 5th avenue tókum smá krók á Lexington og komumst ekki lengra :P 3 búðum seinna og 5 tímum var það bara taxi heim gátum ekki haldið á fleiri pokum :P og ótrúlegt en satt .. já haldið ykkur fast Hrönnslan verslaði meira en ég hahahaha :D jeijjjj var alveg magnað vorum í litlu molli á Columbus circle þegar við komum út var S.W.A.T með hund og allt ... bara allt að gerast ;P




Fórum aðeins í Niketown aðeins og mikið úrval :P


Kveðja frá shopaholic-onum

Stytta frelsisins :D

Já við kíktum á frelsis kjelluna í dag ... ekki alveg það sem við áttum vona á. Kjellan var mikklu minni en við áttum von á ;P


Kveðjur frá
Stóra eplinu ;)

Friday

NYC baby ;)

Já já við erum mætar ;) Búnar að fara í Harlem og allt ;) eða reyndar keyrðum við bara þar í gegn ;) Lentum á JFK klikkað stór flugvöllur erum að renna að inngangnum þegar Hrönnslan lítur við VÓÓ Ólína sjáðu það hefur eitthvað gerst fullt af blikkandi ljósum sjúkrabíla og löggu bíla ... einmitt ég hefði alveg lifað af að heyra þetta svona ný lent :P
Eftir keyrsluna í gegnum Harlem og niður Brodway að hótelinu lentum við á Bellaclair hótelinu .. leit alveg ágætlega út ..... andyrið má nú alveg muns fífli sinu fegura :P en við fegnum lykil lentum á 9 hæð .. eftir langa göngu eftir rosa krókaleiðum fundum við herbergið, og vá hvað það var lítið shitt ekkert hægt að skipta um skoðun :P en samt skára en herbegið á miami hahaha


Fyrsta sem við gerðum var að finna eitthvað að éta ;) fundum mexicanskan skyndibita stórabróðir Serrano ;) mmmmm








That's all from the Westside ;)

Tuesday

Mikið var :P

Hehehe já það er heldur betur langt síðan ég bloggaði :P Og margt runnið til sjáfar síðan ;P Búin að djamma smá, ekkert rosa mikið en svona :P Bacardi Razz nyji uppáhalds drykkurinn ;) Missti vinnuna í vikuni sem að leið .. ekki gaman, en það stillir manni upp við vegg í að hugsa hvað maður vill gera við líf sitt .... Ég komst að því að ég vill verða snillingur ;) hei hver vill það ekki .. en ég ætla að reyna allt sem ég get til að verða meiri snilli en ég nú þegar er :D Ég hef allavega núna nógan tíma til að fara í ræktina múhahaha Svo er NY ferðin á næstuni :P ekki mikið sem verður samt eytt þar ;P dollarin kominn í blússandi 127 krónur já .. alveg að nálgast sögulegt hámark .. en það vill til að það er til fullt af ódyru junki í NY :P en sight seeing þar verður klárlega awsome ;)