Já!! við erum komin heim aftur úr snildar ferð :) fórum 12 saman lögðum á stað á frekar ókristilegum tíma ... klukkan 6.30 kom rútan að sækja okkur .... þegar að gædinn (guide) sá okkur öll spurði hann hvort að þetta væri hálft ísland sem væri að fara með í ferðina hihihihi enda var alltaf talað um okkur sem stórufjölskylduna ... enda versluðum við mest og vorum oftast síðust í rútuna ;) ein og íslendingum einum er lagið ... ferðin var ekki bara að fara á þessa staði inní henn var líka innifalið að heimsækja keramikverkstæði þar sem að var handmálað á munina .. ofboðslega fallegt og þvílík þolinmæðis vinna og geðveikislega flott :D svo fóum við líka á leðurverkstæði, það var nú svipað og þetta sem að við fórum á fyrsta daginn ... tískusýning .. jámmm jakkarnir þarna voru jafnsmart og á hinum staðnum :P og Magga var pikkuð upp til að sýna hihihi :P eftir þetta vorum við lent í EFESUS .......vá það var eins og að vera kominn í annan heim ! Að sjá allar rústirnar sem að eru búnar að vera þarna síðan 200 fyrir krist .. og hverni bara skólplagnakerfið er nánast fullkomnara en í dag og hvað allt var úr marmara .. mesta snildin var klósettinn ... ( myndirnar eru að detta inn ) þetta var risastórt sem var upphaflega með kanksi 50 salernum .. í röð hringin í kringum herbergið þar sátur forn Rómverjar / Grikkir / Tyrkir og gerðu þarfir sínar allir saman í einu herbergi og til að það heyrðust ekki búkhljóð eða kæmi lykt var opið þakið í miðjuni á hefberginu til að fá ferskt loft og svo var foss í miðjuni, þannig að það kæmi vatnsniður svo að hljóðinn heyrðust ekki .. þarna sátu menn tímunum saman og slúðruðu ..... sæi það alveg í anda í dag :P Það tæki bara oflangan tíma að segja frá öllum sem var þarna og útskyra það allt svo ég mæi með að þið kikið á myndirna .. eða sem væri en skemmtilegra færuð sjálf til Tyrklans í svona ferð ! Við mælum öll með nákvæmlega þessari ferð með Guide sem að heitir Sam hann er bara snillingur :D ferðun er frá sunudagsmorgini kl 6.30 go við komin aftur á hotelið á mánudagskvöldi kl 18 allur matur innifalin og gisting maður borgar bara fyrir drykkina ... við mælum samt með að taka nesti maturinn var EKKI neit séstakur :P en allvega best að halda áfram ;) síðan var haldið áfram í Maríu hofið sem að er talið að sé síðasti dvalastaður Maríu Mey mömmu jesú ....það var maður sem sagði mér áðan hérna úti við sundlaugina að í fyrra hafi verið skógareldar þarna og allt brunnið en eldurinn stoppaði í kringum hofið svo að allt í kringum það var ó skaddað ..svoldið magnað ! Við fengum að skoða inní hofið en það mátti ekki taka neinar myndir þar:( en þetta var rosa magnað ..... inni fengum við kerti sem við gátum kveikt á fyrir utan til að biðja fyrir eitthverjum. Næst á eftir eru 3 brunnar af heilögu lindar vatni sem að hægt er að drekka .. þeir eru fyrir hamingju, peningum og heilsuni..... að sjálfsögðu drukkum við úr öllum ;) svo er hægt að binda bandu utan um rimla sem eru þarna á vegg og óska sér .. sem ég auðvitað gerði :D það eru örugglega eitthverjir sem gruna hver óskin er .... en annars ætla ég bara að halda henni fyrir mig ;) Næst var haldið á hótelið .... sem að var í bænum Pamukkale ..... Hótelið lookaði alveg ágætlega utan frá ... en Neibb það var ekki ágæt það var frekar subbulegt og rúminn voru ógeðslega vond gormarnir í rúmonum fóru alveg í gegnum mann.. en þetta var bara ein nótt;) Okkur var boðið uppá kvöldverð á hótelinu, og við krossuðu bæði finngur og tær að fá nú góðan mat .. en NEI hann var hræðilegur :( ég get svo svarið það að ég hef lést um 10 kg í þessari ferð hehehe;) En sjálfsbjargarviðleitnin klikkar aldrei ;) eftir matinn sem engin gat borðað skiptumst við í hópa og leiðuðum að búð sem að seldi eitthvað ætileg .. og auðvitað fundum við ....ja allvega eitthvað ..poweraid, vatn og snakk :o) við flýtum okkur aftur á hótelið en vorum stoppuð af gestapó í móttökuni ,.... neibb þetta er ekkert grín hann var pottþétt í gestapó, hann setti upp svona asnalegan svip og benti okkur á lítinn miða sem að sást valla útíhorni á honum stóð „ bannað að fara með mat og drykki inná hótelið“ vá hvað það var pirrandi ... allir að deyja úr hungri :o( en við settumst bara fyrir utan og bryjuðum að éta þetta allt, nema auðvitað það sem að við gátum troðið í töskur og inná okkur ..svo komu Röggi og Helga út í sömu hugleiðingum og við .. að sjálfsögðu vöruðum við þau við .,.. og Helga tók að troða í risatöskuna sem að hún var með, eitthvað af því sem að við vorum með ;) við læddumst svo inná herbergið hjá Rögga og Helgu .. passa okkur að vera ekki nöppuð með smyglið... þar sem við átum og drukkum eitthvað af smyglinu .. og Helga gerði aðgerð á Birgir með ofurflíastöngini með varaljósinu.... hann var með svaka glerflís í löppini sem var svo reyndar bara pínu ;) á meðan hellti Röggi smá RAKI í Birgir til að lina sársaukan ..... veit ekki hversu mikið gagn það gerði RAKI er þjóðar drykkur tyrkja hann er á bragðið svipað eins og blanda af sambuka og brennivíni :P eða Ouzo drykki Grikkja ... alveg vondur sko og geðveikt sterkur :P Eftir þetta ævintýri var svo farið að sofa ... aumingja Arnan vaknaði við öskurinn í mér um miðja nótt , og örugglega fleiri .. en ég man ekkert eftir að hafa öskrað en ég fékk alveg klikkaðan sinadrát í kálfan var alveg með strengi í honum 2 daga á eftir :S svoklukkan 7:00 var bankað frekar harkalega á hurðina hjá okkur og úti stóð gestapó foringin að vekja allt liðið svo við yrðum ekki of sein í rútuna... auðvitað var boðið uppá morgun mat og núna bíða allir spenntir hehehe ;) han var fín brauð álegg tómatar gúrkur og egg.... og frír djús ;o) ótrúlegt en satt ;) og allir í rúituna og haldið var af stað í Pamukkale .... það var ca 10min keyrsla og svo 10 min ganga eftir mest spes göngu stíg .... ekki alveg sniðin fyrir túrista ca helmingin af leiðini þurftum að fara í gegnum girðingu sem búið var að klippa í sundur frekar frumstætti, alveg ein og við værum að stelast ;) en við komim loks á leiðarenda ... þarna voru nokkrar rústir af borg sem þarna stóð sem var eitthverskonar heilsuspa borg .... við byrjuðum á því að fara að skoða mjólkurhvítu klettana af Pamukkale. Já mjólkuhvítu þeir litu út svona sviðpað og snjór maður getur ýmindað sér að þetta sé skíðasvæði .. en svona lít klettarnir út af vatninu .. þetta er eitthverskonar áhrif svipað í í bláalóninu semt allt annnað ..... þetta minnir alveg á bláalónið en er allt öðruvísi ... u just had to be there ;) eftir að labba á klettunum og auðvita taka myndir.. maður var sko að labba berfættur og þá skrapa klettarnir á manni fæturnar svipað og maður væri í fótsnyrtingu ;) svo fórum við inní hús sem að var samt utandyra ... þar var náttúrulaug ...svipuð og bláalónið aftur ;) þetta er að verða svona smá samkeppni hihihih ... en vantið var svoldið öðruvísi en lónið það var svona eins og sódavatn svona bubbli sparkeling .. ótrúlega skrítið ... og aftur u just had to be there ;) hehehe
Svo var nú farið að halda heim á leið með viðkomu á 2 stöðum ... fyrst var steinaverkstæði .. já nú spyr maður hvað er nú það???? Þarna eru skorið ít í steina sem að heita Onyx sem eru svipaðir og marmari nema það er hægt að lysa í gegnum það geðveikt töff ....svo gátum við skoðað og verslað að vild ... Gummi fékk geggjað flott taflborð sem var útskriftargjöf ... alveg erfðargripur sko ... þarna var hægt ða fá skálar og bolla og fleira úr þessum steini...... Svo var nú haldið á næsta stað semað við áttum að fá að borða á líka ... og klárlega krossum við fingur ;) þetta var svona teppavefverkstæði .... en í matin var ... í forrét var Mohjito súpa ..já ! í alvöru ég er ekkert að palata .. hún var með svona mohjito bragði alveg ágæt sko ... svo voru kjúklingakjötbollur í eitthverju gumsi sem að var líka alveg fínt :D nokkuð góð síðasta máltíðiní ferðini ;) eftir máltíðina var farið með okkur að skoða teppi og konurnar vefa .... og shitt hvað þær voru flínkar í þessu .. og þvílík þolinmæðis vinna eitt lítið silkiteppi sem er svona skraut og ca meter sinnum hálfur tekur 8 mánuði að gera klikkuð vinna sko ... magnað að sjá þetta ....... Næst var farið að skoða mismunandi teppi úr mismunandi efni og finna muninn sem var alveg klikkaðir ,.. væri alveg til í svona silki teppi stórt við rúmið mitt kanski svoldið dýrt :P hehehe En núna var haldið heim til Marmaris, og þar lentum við um klukkan 18:00 öll ótrúlega þreytt :D og dösuð eftir ferðina, að sjá svona mikið á svona stutum tíma er alveg vinna og að meðtaka allt sem að er í gagni ... það er sko engar ykjur að segja að ferðin hún var geðveik og allir í hópnum eru sammála um það ... ferðin fær einkunina 10 alveg óhikandi þrátt fyrir að maturin og hótelið hafi ekki verið uppámarga fiska .. annars hefði ferðin fengið 15 ;) hehehe ... Ef að þið farið til Marmaris er algjörskylda að fara í svona ferð !!!!! þessi kostaði ekki nema 5000 krónur sem að er ekkert fyrir svoan fína ferð ... ódýrara en að fara dagsferð í Efesus með ferðaskifstofuni og þú færð svo mikklu meira fyrir peningin ;) Ég personulega vissi ekki að það væru svona mikið af rómversk/ grískum rústum í tyrklandi .. en það Alexander mikli var víst mikið hérna .. verð að koma því að að áður hét Tyrkland = Anatolia ... og Troy gerðist hérna í tyrklandi líka ..svo það er meiri saga í tyrklandi og voru flestir kristnir hérna á öldum áður ......... já þá er þessari ferða sögu lokið :D
L8r ...peace out;)