Olinabeib

Beibíkeiks ......

Tuesday

æfa meira og meira meira

ja´maður er sko alveg að missa sig í gleðinni :D ég elska það þegar maður fer á æfingu og maður fer framúr eigin vonum um dugnað .. tók brennslu síðasta föstudag og var svo heppin að hitta eina sem ég þekki og byrja að kjafta ;) endaði á að taka klukkutíma og tuttugumínutna brennslu .. ó já jafnið það ;) maður er sko ekki bara útlitið ;) annars hefur nú ekki mikið á mína daga drifið :P Þorrablót Álftanes var síðustu helgi og auðvitað var ég á mínum stað ... sem dyravörðurinn :) trúið mér ég stend mig geggjað vel í því ;) annars er bara æfa æfa æfa like a mofo .... losna við 5 kg fyrir árshátíð ... sem er í lok mars sem gera um 2 mánuðir ;) maður massar það alveg ;) Tanaður í drasl og köttaður í tætlur ;) hahaha..........

Wednesday

;o)

Var í ræktini í dag .... ógó dugleg .. ætlaði að ná 60 min brennslu en því miður náði ég vara 50 min ... og að var ekki þreyta sem var að fara með mig ó nei!!! það var gaur á tækinu fyrir framan mig sem var að drepa mig ... ógeðslega súra svitalyktin ég var alveg að fara að æla ég sver það !! Ég þurfti að beita öllum vilja sem til var hjá mér til að klára síðustu 5 mínuturnar ... það var eins og maðurinn væri bún að fara svona 15 sinnum í ræktina í þessum fötum og láta þau bara þorna á milli ógeðslegasta lykt í heimi!!! ætli gaurinn eigi enga vini sem benda honum á þetta ... :S
Heyrði í Hrönn um helgina loksins var ég á skype á réttum tíma .. eins og hún sagði spjölluðum við "smá" bara í ca 3 tíma ;) og það var frítt dadara :D spurnignum að heyrast kanksi bara oftar og pínu styttra ;) annars er buzy helgi framundan annað hvort er allt að gerast eða ekkert 2 útskriftir og 1 innflutnignsparty :P svona er þetta :P annars er nú ekki mikið sniðugt sem að maður hefur verið að vesenast :P

Þar til næst píps ;)

2007/2008

Jahá nú er komið nýtt ár .. spurnig hvað það mun bera í skauti sér :p allavega kom 2007 verulega að óvart ;) byrjaði frekar rólega svona svo var auðvitað óvænta sumarfríið til Marmaris sem var alger snild .. en rosa lægð skall á eftir það ... en svo kom Unnz og bjargaði lífi mínu og það voru 10helgar í röð af djammi og ótrúlega skemmtilegt,kynntist rosa mikið af skemtilegu fólki ... og það fylgir mér alveg inní 2008 ;) 2008 lítur vel út svon allavega í byrjum ... er nú ekki búin að gera nein mega plön neit en ég hef góða tilfiningu fyrir þessu ári ..... byrjuð að plan ferð til útlanda jeijjj... segi betur frá því seina þegar að það er komið í bækurnar :P

En til allra sem ég þekki takk fyrir árið, árin og allt það :D luv ya all ;)