Olinabeib

Beibíkeiks ......

Wednesday

Uppdeit :P

já svona smá ... pínu uppdeit... Fór á djammið síðustu helgi með Fyrrverandi núverandi Sph/Byr stelpum .. ógógaman kíkti í smá Mohjitio boð til Elísu !skál Elísa þú stóðst þig eins og hetja í mohjitomixinu ;) við kíktum svo seint og um síður niðri bæ ætluðum á Apótekið .. en úff röð DAUÐANS !!! vorum líka svoldið margar svo þetta var ekki alveg að gera sig, en við kíktum á Hressó ...vá þvílík misstök við erum allavega búnar að komast að því hvar ófríða illalyktandi liðið heldur sig ...en eitthverstaðar verða vondir að vera (ekkert illa meint bara staðreynd) næst var B5 ... þar var nú fullt af huggulegu fólki ...en ég get ekki sagt að ég hafi fýlað tónlistina svo við forðuðum okkur nú fljótlega, ákváðum að láta reyna á Apótekið aftur .. það var nú aðeins minni röð og mér tókst með góðum samböndum að ná okkur sem eftir vorum, inn í gegnum V.I.P troðninginn ... það er nú ekki eðlilegt hvað fólk getur troðist :P það var þokaleg góð stemming þar inni og Áki Pain var að standa sig betur í tónlistinni en síðustu helgar. ... Ég lenti nú í frekar furðulegu atriði þarna inni var á Dansgólfinu í mesta sakleysi að taka sporinn .. þegar að það er eitthver kjelling sem dregur gaurinn sinn eftir sér eins og hann sé óþekkur krakki ... hann bíður svo alveg við hliðina á mér með a kjellingin sækir jakkann sinn til Áka.... á meðan finnst mér hann vera að standa eitthvað full nálægt mér .... og ég horfi á stelpurnar sem er að missa sig úr hlátri .. ég var ekki alveg að skilja þetta, svo þegar að skassið er búin að draga gaurinn burtu þá missa þær sig alveg úr hlátri og fara svo að spyrja hvort ég hafi ekki orðið vör við neitt .. vá ég ekki nema að hann var rosalega nálagt .. nei vá skrítið gaurinn var að sniffa ... já !! ég sagði sniffa af hárinu á mér ... þetta er sko ekkert grín .. mikið svakalega held ég að það sé vond lykt af hárinu á kjellinguni hans úff ég ætti kanski að fara að gefa henni sjampó tips :P

Annað mál ... hvar er málið með illa svitalyktandi fólk í ræktinni .. ég er búin að lend við hliðina á svitafýlu dauðans á hverjum degi þessa viku í ræktinni ... það er svo ógeðslegt .. og allt sitthvor manneskja :S hélt samt að heppnin með þetta væri að snúast í gær .. en nei .. þá var kjellingin á tækinu svo andfúl að ef ég leit í áttina til hennar varð ég græn í framan :( hvað gerir maður í svona aðstæðum ? á maður kanski að mæta með lyktaspray og smint bara til að vera öruggur um að geta fixað málið .. svo maður deyi ekki eða verðir að stytta æfinguna vegna neyðarástands .. góð spurning sko .. .. i need to think about this :P


anyhow anywho ;) life's good ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home